Skráðu þig í ECCA. Það er ókeypis og aðstoð þín er nauðsynleg til að stöðva leghálskrabbamein í Evrópu.

Leghálskrabbamein er eina krabbameinið sem mögulegt er að útrýma að mestu í Evrópu. Árangursrík skipuleg leghálskrabbameinsleit getur komið í veg fyrir um 80% legháls- krabbameina og HPV bólusetning á unga aldri getur lækkað tíðni sjúkdómsins enn frekar. Hins vegar koma tvö vandamál í veg fyrir að við getum náð þessu frábæra markmiði:

1) flestir Evrópubúar hafa enn ekki aðgang að þessum forvörnum

2) jafnvel þeir sem hafa slíkan aðgang nýta sér hann ekki.

Við þurfum aðstoð þína til að tryggja að allar evrópskar ríkisstjórnir taki án tafar upp skipulegar forvarnir gegn leghálskrabbameini og við þurfum aðstoð þína til að vekja athygli á þessum forvörnum í þeim löndum þar sem þær eru nú í boði.

Skráðu þig í ECCA og við munum senda þér reglulega upplýsingar um þær aðgerðir sem við skipuleggjum á hverjum tíma þannig að þú getir ákveðið hvort þú viljir taka þátt í þeim. Að gerast meðlimur í ECCA merkir að við veitum þér reglulega upplýsingar um starfsemi okkar.

Til að halda áfram, smelltu þá hér: