Orsakir leghálskrabbameins

Human Papilloma Virus (HPV)

Vörtuveirur (HPV) valda leghálskrabbameini. Það eru meira en 100 tegundir af HPV og um 40 þeirra geta sýkt kynfæri bæði karla og kvenna. Sumar þessara kynfæraveira geta valdið kynfæravörtum en aðrar, þær 15 áhættusömustu, geta valdið óeðliegum breytingum á leghálsfrumum og geta síðan myndað leghálskrabbamein á um 10 til 15 árum.

Kynfæraveirur af HPV toga smitast með kynmökum og berast auðveldlega milli fólks þegar húðir kynfæra þeirra snertast, ekki bara við kynmök. HPV eru mjög algengar veirur og flestir fullorðnir hafa sýkst af þeim einhvern tíma á ævinni en þessar sýkingar valda engum augljósum einkennum þannig að flestir hafa ekki hugmynd um að þeir hafi smitast.

Það er engin meðferð við áhættusömustu HPV veirunum en sem betur fer hverfa flestar þessar sýkingar af sjálfu sér með þeim óeðlilegu frumum sem af þeim hafa hlotist. Aðeins þær sýkingar sem ekki hverfa geta síðar leitt til þess að leghálskrabbamein myndist.