Leghálskrabbamein

Krabbamein getur vaxið í leghálsi þínum á sama hátt og það getur vaxið annars staðar í líkama þínum. Þrettán tegundir af vörtuveirum sem nefnast Human Papilloma Virus eða HPV á ensku geta einkum valdið leghálskrabbameini. HPV getur breytt frumum í leghálsi þannig að þær verða óeðlilegar og mynda smám saman krabbamein. Í fyrstunni eru þessar breytingar vægar og oft hverfa þær af sjálfu sér án meðferðar.

Leghálskrabbamein

Stundum hverfa þessar óeðlilegu frumur ekki og verða að leghálskrabbameini ef þær greinast ekki og eru fjarlægðar. Óeðlilegar leghálsfrumur er mjög auðvelt að fjarlægja og þannig má koma í veg fyrir leghálskrabbamein. En þessar óeðlilegu frumur gefa engin einkenni og eina leiðin til að finna þær er með leghálskrabbameinsleit.