Tíðni leghálskrabbameins í Evrópu
Í Evrópu allri fá um 60,000 konur leghálskrabbamein og 30,000 deyja úr því á hverju ári. Fleiri en 225.000 konur eru á lífi með leghálskrabbamein (í meðferð eða ekki). Mikilvægt er að gera sér grein fyrir því að tíðni leghálskrabbameins er mjög mismunandi eftir löndum. Í sumum löndum Austur Evrópu er tíðnin 2 eða 5 sinnum hærri en í hinum 15 upprunalegu aðildarlöndum EB. Þessi munur byggist að verulegu leyti á því hvort konur eigi kost á legháls-krabbameinsleit. Slík leit ásamt árangursríkri heilbrigðisfræðslu og upplýsingamiðlun til að tryggja að konur nýti sér leitina mundi minnka tíðni leghálskrabbameins í þessum löndum og tryggja meira jafnrétti heilsugæslu fyrir alla íbúa EB landa.
1. Ferlay J, Bray F, Pisani P, Parkin DM. GLOBOCAN 2002: Cancer Incidence. Mortality and Prevalence Worldwide. IARC CancerBase No. 5, version 2.0., Lyon: IARC Press 2004.
2. WHO/ICO Information Centre on HPV and Cervical Cancer (HPV Information Centre). Summary report on HPV and cervical cancer statistics in Spain. 2007. [Accessed 15/01/09]. Available at www. who. int/ hpvcentre


