Tegundir leitar

Leghálskrabbameinsleit getur verið annað hvort tilfallandi (óskipuleg) eða farið fram samkvæmt skipulegri leitaráætlun. Bæði tillfallandi og skipuleg leit geta dregið mjög úr leghálskrabbameini. Samt sem áður er skipuleg leit:

  • Réttlátari (sömu gæði standa öllum konum til boða) 
  • Áhrifaríkari (dregur mest úr leghálskrabbameini)
  • Árangursríkari (sýnir besta árangur miðað við kostnað)

Leghálskrabbameinsleit á Íslandi fer fram samkvæmt skipulegri leitaráætlun og nær til allrar þjóðarinnar. Öllum konum á aldrinum 20-69 ára er boðið í skoðun á 2ja ára fresti en konum 40-69 ára með eðlilega fyrri leitarsögu og tiltekinn fjölda eðlilegra frumustroka er boðið 4 hvert ár.