Reyndist prófið þitt óeðlilegt?
Flest leghálsfrumustrok eru eðlileg, en sum eru það ekki. Ef þitt strok hefur reynst óeðlilegt þýðir það einfaldlega að einhverjar óeðlilegar frumur hafa fundist í leghálsstroki þínu. Þetta eru vanalega vægar breytingar og þýða ekki að þú sért með krabbamein. Í raun þurfa margar konur með óeðlileg frumustrok enga meðferð. En sumar þurfa hana og því þarf að fylgja öllum konum vel eftir til að minnka hættuna á því að þær fái leghálskrabbamein.

