Meðferð

Á Íslandi fer meðferð fram með keiluskurði sem í flestum tilfellum er framkvæmdur með hefðbundnum hníf eða með rafhníf.

Frysting

Meðferð með frystingu er ekki framkvæmd á Íslandi. Það er frumskilyrði við meðferð forstigsbreytinga að fyrir aðgerð liggi ávallt fyrir vefjasvar úr leghálsspeglun og eftir aðgerð liggi fyrir vefjasýni sem geti staðfest rækileika meðferðar m.t.t. skurðbrúna keiluskurðar.

Brennsla með leysi

Sömu fyrirmæli og í kafla um frystingu.

Keila með rafhníf (LEEP)

Þessi aðgerðartækni er í dag algengasta form keiluskurða. Við aðgerðina er notuð vírlykkja sem hituð er með rafmagni. Lykkjan sker burtu efsta lag leghálsins sem sent er til nánari skoðunar á rannsóknarstofu. Aðgerðin er gerð sem dagdeildaraðgerð í svæfingu eða í staðdeyfingu.Konunum er ráðlagt að hafa ekki samfarir eða reyna mikið á sig í 4 til 5 vikur eftir aðgerðina vegna blæðingarhættu. Dömubindi er ráðlagt í stað skeiðartappa.

Keila með hefðbundnum hníf

Þessi aðgerð er gerð á sama hátt og LEEP en hefbundinn hnífur notaður í stað raflykkju. Sömu varúðarreglur gilda eftir hnífkeilu og rafkeilu.