Hverjar eiga að koma í leit?
Á Íslandi er mælt með leghálskrabbameinsleit fyrir allar konur 20 til 69 ára. Það gildir jafnt fyrir konur sem eru hættar að hafa blæðingar, hafa farið í ófrjósemisaðgerð eða stunda ekki lengur kynlíf. Ef þú ert ekki viss um það hvort þú þarft að koma í leit, skaltu ræða við lækninn þinn sem getur ráðlagt þér.

