Hve oft þarftu að mæta til leitar?

Krabbameinsfélags Íslands skipuleggur leit að leghálskrabbameini í samstarfi við heilbrigðisráðuneytið og hefur Leitarstöð Krabbameins-félagsins umsjón með leitinni hér á landi. Öllum konum er boðið í leghálskrabbameinsleit á tveggja ára fresti frá 20-69 ára aldurs. Konur á aldrinum 40-69 ára með sem aldrei hafa haft frumubreytingar og hafa komið amk 5 sinnum í leit verða þó boðaðar á fjögurra ára fresti.

Aldur

Mæting

20

Fyrsta mæting

20 - 39

Tveggja ára fresti

40 - 69

Fjögurra ára fresti ef konan hefur fimm eðlileg frumustrok og þar af tvö á síðustu 6 árum fyrir fertugt. Allar aðrar eru boðaðar á tveggja ára fresti

69+

Konum er frjálst að mæta á fjögurra ára fresti að eigin vild