Hvað þarftu að gera?

Í stuttu máli áttu að mæta þegar þú færð boðunarbréf frá Leitarstöðinni. Þær konur sem ekki búa á höfuðborgarsvæðinu geta fengið skoðun á heilsugæslustöð í byggðarlagi sínu og allar konur geta farið til kvensjúkdómalæknis og fengið frumustrok gert þar. Niðurstöður úr öllum frumustrokum eru síðan send til Leitarstöðvar sem hefur yfirumsjón með leitinni og getur þá kallað inn þær konur sem þurfa á nánari skoðun eða aðgerð að halda.

Til að draga úr líkum á að frumustrokið verði ófullnægjandi er best að fylgja eftirfarandi leiðbeiningum:

  • ekki panta tíma fyrr en nokkrum dögum eftir að blæðingum lýkur
  •  ekki setja lyf í leggöng síðustu 2 dagana fyrir töku frumustroksins

Forðast ber að hafa samfarir nóttina fyrir  töku frumustroksins.

Við töku frumustroksins leggst þú í kvensjúkdómastól. Áhald sem kallað er andanefja (líkist nefi á önd) er sett varlega í leggöng. Varast ber spennu í grindarbotnsvöðvum þegar andanefjunni er komið fyrir. Þegar andanefjan er opnuð sést vel í leghálsinn og með aðstoð spaða og lítils bursta er auðvelt að ná frumum frá leghálsinum. Þessum frumum er síðan annað hvort strokið beint á glerplötu (hefðbundið frumustrok) eða  komið fyrir í vökva (vökvasýni). Í báðum tilfellum eru frumurnar síðan litaðar og skoðaðar í smásjá. Í smásjánni er unnt að greina afbrigðilegar frumur frá heilbrigðum frumum. Afbrigðilegar frumur eru flokkaðar í vægar, meðal eða miklar forstigsbreytingar. Ef slíkar breytingar greinast færð þú bréf frá Leitarstöð eða þínum lækni.