Hefur þér verið vísað til leghálsspeglunar?
Við þessa speglun er unnt að greina betur afbrigðileg svæði á leghálsinum.
Speglunin er gerð við svipaðar aðstæður og þegar frumustrok er tekið frá leghálsinum. Við leghálsspeglun er leghálsinn skoðaður með sérstakri smásjá og vefjasýni tekin frá svæðum sem kunna að virðast afbrigðileg. Við speglunina er leghálsinn þveginn með ediksýru (venjulegt borðedik) en sá vökvi kallar fram afbrigðileg svæði á leghálsinum. Í vissum tilvikum er notuð joðlausn.
Næsta skref eftir leghálsspeglunina ákvarðast af niðurstöðu vefjasýnis sem tekið er við speglunina. Ef vefjasýnið staðfestir meðal til miklar vefjabreytingar er oftast gerður keiluskurður (og sjaldnar legnám.) Ef vefjasýni eru eðlileg eða með vægum vefjabreytingum ákvarðast framhaldið af aldri konunnar og fyrri leitarsögu hennar.
Í sumum löndum Evrópu er gerður keiluskurður án þess að niðurstaða vefjasýna liggi fyrir (see and treat meðferð). Á Íslandi er ekki ráðlagt að gera keiluskurð án þess að áður hafi verð gerð leghálsspeglun með vefjasýnistöku.

