Leghálskrabbameinsleit

Leghálskrabbamein myndast þegar frumur á leghálsi sýkjast með einni eða fleiri tegundum af áhættusömum afbrigðum HPV og verða þá óeðlilegar og geta síðan breyst í krabbamein. Leitað er að leghálskrabbameini til að finna þær konur sem hafa frumubreytingar á forstigi, ekki orðnar að krabbameini, en þá er hægt að fjarlægja þær þannig að þær verði ekki illkynja.