Undirskriftasöfnunin STÖÐVIÐ leghálskrabbamein
If you have not signed the petition, please do it now: www.CervicalCancerPetition.eu
Var sett á laggirnar af Evrópusamtökum um leghálskrabbamein (ECCA), Evrópsku krabbameinssamtökunum, Samtökum evrópskra krabbameinsfélaga og alþjóðasamtökum krabbameinsfélaga. Undirskriftasöfnunin byggir á Frumkvæðisrétti þegnanna í Lissabon sáttmála EB sem skuldbindur stjórn EB til aðgerða ef 1 milljón íbúa Evrópu krefjast þess. Nú þegar hafa manns undirritað ákallið um stuðning stjórnmálamanna við að útrýma leghálskrabbameini í Evrópu og fjöldi þeirra eykst daglega.
Það sem er mikilvægast að gera sér grein fyrir varðandi leghálskrabbamein er að við vitum nákvæmlega hvað gera skal til að koma í veg fyrir nærri því hvert einasta tilfelli þessa sjúkdóms. Sýnt hefur verið fram á að skipulegar áætlanir um leghálskrabbameinsleit geta komið í veg fyrir um 80% dánartilvika af völdum leghálskrabbameins og nú gerir ný tækni okkur mögulegt að bæta við þennan þegar góða árangur. En samt er staðreyndin sú að flestar evrópskar konur eiga ekki kost á slíkri leit.
En hvernig getur undirskriftasöfnun orðið að gagni? Meðan Lissabon sáttmálinn hefur ekki verið samþykktur, bera milljón undirskriftir með sér siðferðilega skuldbindingu sem vísbending um álit almennings. Því munu stjórnmálamenn taka mark á. Auk þess er undirskriftasöfnun með einni milljón undirskrifta mjög gagnleg til að draga athygli fjölmiðla að málefninu og getur þannig nýst sem tæki til að koma upplýsingum um leghálskrabbamein til almennings og efla vitneskju um þetta mikilvæga mál.

