Átaksvika gegn leghálskrabbameini

Leghálskrabbamein er sérstakt að því leyti að við vitum þegar hvað við þurfum að gera til að koma í veg fyrir nærri öll tilfelli, virk leit og bólusetning gætu bókstaflega útrýmt leghálskrabbameini. Samt sem áður eru tvær staðreyndir sem koma í veg fyrir að þetta geti orðið að raunveruleika í Evrópu:

  • langflestar konur í Evrópu vita enn of lítið um leghálskrabbamein eða hvað þær geta gert til að koma í veg fyrir það
  • Mörg Evrópulönd hafa óvirkar áætlanir um leghálskrabbameinsleit eða engar

ECCA hafði því frumkvæði að Evrópsku forvarnarvikunni um leghálskrabbamein á árinu 2007 til þess að vekja árvekni um leghálskrabbamein og hvernig væri hægt að koma í veg fyrir það meðal:

  • evrópskra kvenna svo þær geti lært hvað þær þurfa að gera til að forðast þennan sjúkdóm og hvar þær geti fundið viðhlítandi þjónustu þar sem hún er til
  • stjórnmálamanna og stjórnenda heilbrigðismála í Evrópu svo að þeir skilji hvaða ávinningur hlýst af forvarnarverkefnum og þeir veiti slíkum verkefnum forgang þar sem þau eru ekki fyrir hendi
Skýrslur um forvarnarvikur

Forvarnarvika 2009

Forvarnarvika 2008

Forvarnarvika 2007