Átak undir merkjum Vísdómsperlunnar®
Hægt væri að koma í veg fyrir nærri öll tilfelli af leghálskrabbameini með virkri leit og bólusetningu en flestar konur hafa ekki aðgang að slíkum áætlunum. Átakið Vísdómsperlan var sett á laggirnar til að verða sýnilegt og kunnuglegt tákn sem fólk gæti borið til að sýna stuðning sinn við forvarnir gegn leghálskrabbameini. Auk þess fer það gjafafé sem fæst með átakinu beint til stuðnings verkefna til varnar leghálskrabbameini eins og að:
- Útbúa og dreifa fræðsluefni til að upplýsa almenning um forvarnir gegn leghálskrabbameini og hvetja konur til að nýta sér til fulls þá þjónustu sem stendur til boða
- Útbúa fræðsluáætlun fyrir heilbrigðisstarfsfólk til þess að tryggja að það sé upplýst um allar nýjustu aðferðir til að koma í veg fyrir leghálskrabbamein
- Fræða stjórnmálamenn til þess að tryggja að þeir skilji ávinning forvarnaáætlana gegn leghálskrabbameini og setji þær þess vegna í forgang þar sem þær eru ekki fyrir hendi og vinni að því að bæta þátttöku í slíkum aðgerðum þar sem þær finnast


